Vilt þú starfa í björgunarsveit? Kynningarfundur 2. sept.

Post date: Aug 12, 2010 2:56:48 PM

Kyndill leitar nú að sjálfboðaliðum 18 ára og eldri til að taka þátt í nýliðaþjálfun 2010-2011.

Kynningarfundur verður haldinn fyrir áhugasama fimmtudaginn 2. september kl. 20.00 í húsakynnum Kyndils að Völuteig 23 Mosfellsbæ.

Nýliðar fá góða fræðslu og þjálfun í ferða- og fjallamennsku, skyndihjálp, fjarskiptum og mörgu öðru sem nauðsynlegt er að kunna við björgunarstörf í íslensku veðri og náttúru.