Menn í sjálfheldu í Esjunni

Post date: Jun 21, 2011 6:53:24 PM

Fimm fjallabjörgunarmenn frá Kyndli tóku þátt í útkalli í Esjunni í dag þar sem tveir menn lentu í sjálfheldu í klettabelti milli Þverfellshorns og Gunnlaugsskarð. Voru mennirnir hífðir upp í Þyrlu Landhelgisgæslunnar og voru þeir orðnir nokkuð kaldir og hraktir enda blíðviðrið mest við sjávarmál en talsvert minna til fjalla.