Útkall við Meðalfellsvatn

Post date: May 29, 2012 1:02:05 PM

Björgunarsveitin Kyndill Mosfellbæ tók þátt í leitinni við Meðalfellsvatn síðdegis í gær. Leitað var að lettneskri konu sem saknað hefði

verið um tíma.

7 manna hópur fór frá Kyndli og voru fjórhjól og leitarhundur með í för. Rúmlega 100 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni m.a. göngumenn, fólk á fjórhjólum, kafarar, hundateymi og leitað var í vatninu á bátum og úr lofti á fisflugvél.

- Meðalfellsvatn