Leit á Mosfellsheiði

Post date: Feb 14, 2009 10:43:48 PM

Björgunarsveitirnar Kyndill og Kjölur voru kallaðir út til að leita að þremur mönnum á fjórhjólum sem voru lentir í villum á Mosfellsheiði. Einn mannanna hafði orðið viðskila við hina og fannst hann rétt sunnan við afleggjarann við Skálafell. Fundust hinir tveir skömmu síðar og allir heilir á húfi.