Leit á Sólheimajökli

Post date: Nov 12, 2011 9:55:25 PM

Leitarhópar frá Kyndli hafa undnfarna daga tekið þátt í leitinni að Daniel Markus Hoij, sænskum ferðamanni sem leitað hefur verið síðan á miðvikudag. Neyðarlínu barst neyðarkall frá manninum seint á miðvikudagskvöld og taldi hann sig vera á jökli. Björgunarsveitir hafa leitað allan sólarhringinn við afar erfiðar aðstæður og veður hefur verið vont.

Í dag fannst maðurinn látinn í sprungu í rúmlega 600 metra hæð í jöklinum.