Sleðamessa 2012

Post date: Feb 16, 2012 7:14:18 PM

Um síðustu helgi var Sleðamessa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar haldin á Akureyri. Frá Kyndli fóru tveir sleðar norður en nú í ár var ákveðið að hafa hluta af messunni verklega.

Um 40 sleðamenn víðsvegar af landinu komu saman á laugardeginum og farið var með þá í æfingar í fjalllendi á utanverðum Tröllaskaga.

Á sunnudaginn var svo farið frá Grenivík og ekið að skálanum Gili.

Sleðahópur Kyndils þakkar öllum fyrir góða helgi fyrir norðan.