Þökkum stuðninginn!

Post date: Jan 2, 2010 11:36:56 PM

Björgunarsveitin Kyndill óskar öllum Mosfellingum og öðrum velunnurum gleðilegs nýs árs og velfarnaðar á nýju ári. Einnig viljum við þakka góð viðbrögð við flugeldasölunni okkar sem er mikilvægasta tekjuöflun félagsins.

Árleg brenna og flugeldasýning verður síðan haldin á þrettándanum og hvetjum við alla til að fjölmenna.