Fótbrot í Esjunni

Post date: Jun 5, 2009 4:23:09 PM

Kyndill hefur verið kallaður tvisvar út með stuttu millibili að aðstoða við sjúkraflutninga í Esjunni. Fyrir tveimur vikum ökklabrotnaði erlend kona rétt fyrir ofan þriðju stiku og talsvert vestan megin við göngustíginn og í gær fótbrotnaði kona ofarlega í Eiríksmýrinni. Sjúkraflutningar í fjallendi eru afar erfiðir og þarf mikinn mannskap til að tryggja öryggi þess sem flytja þarf.