29.-30. Maí 2008 - Jarðskjálftar

Post date: Dec 9, 2008 12:22:59 AM

Hópur frá Kyndli hefur tekið þátt í aðgerðum vegna Suðurlandsskjálftans undanfarna tvo daga. Fyrstu verkefnin voru að ganga hús úr húsi í Hveragerði, Stokkseyri og í sveitunum í kring til að athuga með fólk og einnig kanna ástand húsa. Í dag hafa verkefnin aðallega falist í almennri aðstoð og flutningi aðfanga.