Meydýrlingakvæði:
Agnesarkvæði - Upphaf: „Í þann tíma ríkti í Róm/ ræsir einn á láði." Eftir Þorvald Magnússon (f. 1670. d. 1741). Sjá einnig íslensk söguljóð
Barbörukvæði - Upphaf: „Dyspoteus hét drengurinn heiðinn". Höfundur ókunnur. Sjá einnig íslensk söguljóð
Dorotheu kvæði - Upphaf: „Hef ég mér sett með herrans ráði". Gamalt helgikvæði. Höfundur ókunnur. Sjá einnig íslensk söguljóð
Ekkjukvæði - Upphaf: „Utanlands í einum bý". Mjög fornt ekkjukvæði frá miðöldum. Höfundur ókunnur. Sjá einnig íslensk söguljóð
Margrétarkvæði - Upphaf: „Svo er skrifað suður í Róm." Þetta kvæði er kaþólskt, ort löngu eftir siðaskipti. Höfundur ókunnur. Sjá einnig íslensk söguljóð
Súsönnukvæði - Upphaf: „Himnasmið ég hæstan bið að hjálpa mér". Súsönnukvæði er varðveitt heilt í Vísnabók Guðbrands Þorlákssonar frá 1612. Sjá einnig Bjarna Þorsteinsson Íslenzk þjóðlög, bls. 613. Sjá einnig íslensk söguljóð
Úrsúlukvæði - Upphaf: „Það skal upphaf óðarblands,/ eftir sögu meistarans." Þetta kvæði kallast einnig „Annálskvæði af 1100 meyjum". Þar er fjallað um Úrsúlu hina ensku. Hún var konungsdóttir frá Bretlandi er hélt af stað í pílagrímsför til Rómaborgar með 11000 meyjum. En Atli Húnakonungur var þeim öllum að bana á leiðinni. Sjá einnig íslensk söguljóð
Veronikukvæði - Upphaf: „Kveð ég um kvinnu eina." Eftir Þorvald Magnússon (f. 1670. d. 1741). Sjá einnig íslensk söguljóð
Maríukvæði:
Carmen de Beata Virgine Maria - Upphaf: „Máría móðurin skæra/ meyja blóm og æra." Eftir Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471). Sungið í tvísöng
Græðarinn lýðs og landa - Upphaf: „Græðarinn lýðs og landa." Höf. ókunnur.
Heyr mig himins og láða - Upphaf: „Heyr mig himins og láða." Höf. ókunnur. Maríukvæði frá miðöldum, illa varðveitt.
Heyrðu hjálpin skæra - Upphaf: „Heyrðu hjálpin skæra." Höf. ókunnur.
Hugraun - Upphaf: „Það er upphaf dyggða." Höf. ókunnur.
Jubilus beatae Mariae Virginis Edur Jómfrúr Mariae dans - Upphaf: „Guðs almáttugs dóttir dýr." Eftir Daða Halldórsson (f. 1637. d. 1721) aðstoðarprest í Hruna og síðar í Steinsholti. Kvæðið hefur viðlag.
Maríugrátur - Upphaf: „Blómstrið brúða og kvenna." Höf. ókunnur.
Maríulykill - Upphaf: „Drottning æðsta, dýr af ættum." Eftir Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471).
Maríuvísur - Upphaf: „Máría móðirin skæra/ minning þín og æra." Eftir Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471). Sjá Kvæðasafn eftir nafngreinda menn á miðöld, bls. 138-140. Sungið í tvísöng
Maríuvísur - Upphaf: „?" Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550).
Um heiðurs mey vil eg hefja - Upphaf: „Um heiðurs mey vil eg hefja." Höf. ókunnur.
Vegsemd allra vífa - Upphaf: „Vegsemd allra vífa." Höf. ókunnur. Kvæðið er ort eftir siðaskiptin.
Vísur af sancta Maria virgine - Upphaf: „Sancta Maria mater mild/ himna kóngs og landa." Eftir Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471).
Heilagramannakvæði:
Biskups Jóns vísur - Upphaf: „Rögnis rósar minni." Eftir Odd Halldórsson handi (f. á seinni hluta 15. aldar eða á síðari hluta 16. aldar).
Christophorus kvæði - Upphaf: „Hæstur guð ég heiti á þig." Kvæðið hefur fjallað um heilagan Kristófer. Á hann var gott að heita í sjóróðrum, einkum í tengslum við langar sjóferðir.
Guðmundar drápa biskups - Upphaf: „Ræsi heiðra ek lopts ens ljósa." Eftir Arngrím ábóta Brandsson (d. 1361).
Laurentíusdiktur - Upphaf: „Heyr þú heilagi andi/ er himna stýrir láð." Höf. ókunnur.
Sancti Ólafs vísur - Upphaf: „Herra Ólaf, hjálpari Noregs landa." Eftir Gunna Hallsson Hólaskáld (f. 1465. d. 1645). Varðveittar í AM 721. 4to og fjölmörgum pappírshandritum.
Tómasdiktur - Upphaf: „Vil eg hins bjarta blóma." Höf. ókunnur.
Heimssögudrápur:
Davíðsdiktur - Upphaf: „Heyr mig, himna stýrir,/ herrann allra greina." Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550). Sami bragarháttur og við Ljóm.
Lilja - Upphaf: „Almáttigr guð allra stétta." Eftir Eystein Ásgrímsson (d. 1361) munk að Þykkvabæjarklaustri.
Ljómur - Upphaf: „Hæstur heilagur andi/ himnakóngurinn sterki." Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550).
Niðurstigningsvísur - Upphaf: „Djarfleg er mér diktan." Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550).
Rósa - Upphaf: „Faðir og son á hæstu hæðum." Eftir Sigurð blind Narfason (f. um 1470. d. um 1545).