(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471) var eitt helsta skáld samtíma síns og orti m.a. Maríulykil og Carmen de Beata Virgine Maria. Var hann meðal annars ráðsmaður á Hólum í Hjaltadal til ársins 1429. Seinna varð hann prestur á Grenjaðarstað til dauðadags. Annars er lítið vitað um ævi hans og uppruna.
Kveðskapur Jóns Pálssonar Maríuskálds með lagboðum:
Carmen de Beata Virgine Maria - Upphaf: „Máría móðurin skæra/ meyja blóm og æra." Helgikvæði
Maríulykill - Upphaf: „Drottning æðsta, dýr af ættum." Helgikvæði
Maríuvísur - Upphaf: „Máría móðirin skæra/ minning þín og æra." Sjá Kvæðasafn eftir nafngreinda menn á miðöld, bls. 138-140. Helgikvæði
Vísur af sancta Maria virgine - Upphaf: „Sancta Maria mater mild/ himna kóngs og landa." Helgikvæði