Sagnakvæði eru íslensk þjóðkvæði undir fornyrðislagi sem finnast í handritum frá seinni hluta 17. aldar og síðar. Þó er talið að þessi kvæði séu miklu eldri en handritin sjálf, þ.e. hafa geymst á vörum fólks um aldir. Sagnakvæðin fengu efni sitt úr seinni tíma sögnum og ævintýrum en einnig má finna efnisleg líkindi við fornaldarsögur. Kvæðin eru oft falleg og tilfinningarík og þykir efnismeðferðin t.d. stinga mjög í stúf við rímur.
Margir fræðimenn hafa reynt að aldursgreina þessi sagnakvæði og töldu Guðbrandur Vigfússon og Jón Þorkelsson t.a.m. að sagnakvæðin hefðu verið ort á 16. öld. Þá segir Jón Guðmundsson lærði (1574-1658) á einum stað í ritverkum sínum að Kötludraumur sé „gamalt ljóð". Rannsóknir á Kötludraumi sýna að kvæðið hefur verið ort fyrir hljóðdvalarbreytingu á tíma s-stuðlunar og því hefur Kötludraumur verið ortur ekki seinna en á 14. öld. Kötludraumur hefur verið mjög vinsælt kvæði. Kvæðið má finna í minnst 80 handritum. Þá hefur Steinunn Finnsdóttir á Höfn þekkt Kötludraum og Snjás kvæði og ort rímur út frá þeim.
Engin þjóðlög hafa varðveist við sagnakvæðin beint. Þó hafa minnst fjögur þjóðlög varðveist við önnur kvæði undir fornyrðislagi, t.a.m. við Völuspá, Grýlukvæði og barnagælu eftir síra Ólaf Jónsson á Söndum. Sjá eddukvæði og dróttkvæði.