Um síðuna:
Þessa síðu bjó ég til á vetrarmánuðum 2020 einkum til persónulegra nota. Henni var fyrst og fremst komið á fót til þess að halda utan um kveðskap sem ég hef haft dálæti á, heyrt og lesið úr gömlum bókum. Í mínu grúski hefur furðuoft komið fyrir að ég hef hvergi getað nálgast þau kvæði, sem mér þótti sjálfsagt að væru aðgengileg, á vefnum. Það hefur því runnið upp fyrir mér hversu mikið af kvæðaarfinum er enn óaðgengilegur á stafrænu formi. Af þeim sökum hef ég tekið mig til og skrifað upp mín eftirlætis kvæði hér á síðuna mér til dægrastyttingar svo ég hafi aðgang að þeim hvar sem er og hvenær sem er. Síðast taldi ég 1.145 kvæði á síðunni (23.2.2025).
Kvæðin á síðunni eru ýmist flokkuð eftir efnistökum eða bragarháttum. Í einstaka tilfellum hef ég flokkað kvæðin eftir flutningsmáta (t.d. tvísöngvana). Endanleg útfærsla á flokkuninni er enn óákveðin.
Sem stendur eru kvæðin flest veraldleg en ég stefni að því að skrifa einnig upp sálma sem ekki eru lengur aðgengilegir í nýju sálmabókinni (2022). Bragi óðfræðivefur hefur þegar skrifað upp alla sálma úr elstu sálmabókum en enn á eftir að gera grallarasálmana, sálmabók Ara Sæmundsen og sálmabók Péturs Guðjohnsen góð skil.
Ég reyni eftir fremsta megni að tengja kvæði með sömu bragarháttum saman. Það er gert svo ég geti kveðið/tónað sama lag við fleiri kvæði. Mér finnst best að vera með tóninn til þess að geta lært þau sem mest utanbókar. Í framtíðinni mun ég síðan setja inn hljóðupptökur þar sem ég syng/kveð lagboðana/stemmurnar. Lögin koma úr ýmsum áttum, þau eru yfirleitt íslensk þjóðlög/kvæðalög, sálmalög og þjóðlög frá nágrannalöndum. Vonandi tekst mér að skrifa upp nótur ef tími gefst.
Þorsteinn Björnsson er höfundur þessarar vefsíðu.
Fæðingardagur: 30. apríl 1996.
Búseta: Hvanneyri í Borgarfirði til ársins 2012. Nú í Reykjavík.
Menntun:
Stúdentspróf árið 2016 frá Menntaskólanum í Reykjavík (fornmálabraut II).
BA. gráða í íslensku við HÍ haustið 2019. Skrifaði um Símon Dalaskáld og rímur hans. Sjá: https://skemman.is/handle/1946/32880
MA. gráða í íslenskum bókmenntum fyrri alda við HÍ haustið 2022. Skrifaði um textatengsl Hákonar Sögu Hákonarsonar og Íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar. Sjá: https://skemman.is/handle/1946/42765
Kennsluréttindi við HÍ sumarið 2024 og leyfisbréf kennara frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu 5. september 2024.
Núverandi nám: Doktorsnám í íslenskum bókmenntum fyrri alda við HÍ. Í doktorsverkefni mínu mun ég rannsaka mansöngva í rímum fyrir 1600. Verkefnið fékk rannsóknarstyrk til þriggja ára og er stefnt að því að verkefninu ljúki á haustmánuðum 2027.
Tónlistarnám: Píanó (á framhaldsstigi) og söngnám (á miðstigi) við Tónlistarskólann í Reykjavík (nú Menntaskóli í tónlist).
Nefndar- og stjórnarsetur:
Félag íslenskra fræða – í stjórn frá árinu 2021. Meðstjórnandi.
Són- ritrýnt tímarit um óðfræði – í stjórn frá árinu 2024. Gjaldkeri.
Framhaldsnámsnefnd Hugvísindasviðs við HÍ – í nefnd frá árinu 2024.
Félag doktorsnema og nýrannsakenda á hugvísindasviði við HÍ – í stjórn frá árinu 2024.
Nemendafulltrúi á fundum námsbrautar í íslensku– í nefnd frá árinu 2024.
Í sóknarnefnd Hallgrímskirkju frá vormánuðum 2025
Varamaður í stjórn Kvæðamannafélagsins Iðunnar frá árinu 2025
Áhugamál:
Kveðskapur fyrri alda augljóslega. Einkum kveðskapur af veraldlegu tagi. Þó einnig grallarasálmar og önnur forneskja.
Kvæðaskapur og söngur. Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur.
Allt sem viðkemur 15. 16. 17. 18. og fyrri hluta 19. aldar á Íslandi
Bókasöfnun
Ættfræði
Harmóníum
Píanóleikur