Formúluvísur og kveðjukvæði var vinsæll gamankveðskapur áður fyrr, einkum fyrir börn. Vera kann að einhverjar formúluvísur/keðjukvæði hafi einnig notið vinsælda á vökunóttum í gleðinni (vikivökum) fyrr á öldum. Í Færeyjum tíðkast t.d. að dansa formúluvísur og keðjukvæði fyrir lönguföstu sem þekkjast einnig hér, t.d. Kvæðið af sankti Símon og Það var eitt tré. Formúluvísurnar og keðjukvæðin eru höfundalaus. Yelena Sesselja Helgadóttir nýdoktor á menningarsviði Árnastofnunar skilgreinir keðjukvæði á eftirfarandi hátt: „keðjukvæði: kvæði sem „skiptast í erindi eða kafla, sem sífellt eru endurteknir, og er bætt við nýju atriði í hvert sinn“ og hafa því fyrirfram ákveðna, formúlukennda byggingu.
Íslenskar formúluvísur og keðjukvæði:
Ég sá þann mann er fleskið bar - Upphaf: „Ég sá þann menn er fleskið bar." Gamalt keðjukvæði, til í handritum frá 18. öld. Engar heimildir eru til um lag fyrir þessa þulu, því miður.
Fúsintesþula - Upphaf: „Í miðjum garði axlar hann sín gullin skinn/ hann Fúsintes." Þulukvæði með íslensku þjóðlagi. Sjá einnig þulur og dansþulur.
Karl sat við stokk sinn - Upphaf: „Karl sat við stokk sinn/ var að berja fisk sinn." Þulukvæði.
Karlinn í bergi - Upphaf: „Þá er best að tala um karlinn þann í bergi bjó." Gamalt keðjukvæði með íslensku þjóðlagi.
Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla - Upphaf: „Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla/ eg skal gefa þér einn fisk/ og allt upp á einn disk." Kveðjukvæði með íslensku þjóðlagi. Sjá jóladansa.
Kvæðið af sankti Símon - Upphaf: „Stattu upp sankti Símon og segðu mér hver var einn?" Kvæðið er miklu algengara í Færeyjum og er nákvæmlega eins þar. Þar syngja Færeyingar kvæðið í tengslum við „telja jólini" fyrir langaföstu (getur borið upp á 1. febrúar til 7. mars). Lagboðinn er því fenginn frá frændum okkar Færeyingum.
Sjö sinnum það sagt er mér - Upphaf: „Sjö sinnum það sagt er mér."
Titlingurinn og karlinn - Upphaf: „Einu sinni var kerlingin/ að vefa vefinn sinn."
Það var eitt tré - Upphaf: „Það var eitt tré/ eitt lítið tré." Íslensk þýðing úr hinu dansa þjóðkvæði „Bjerget ligger langt ut i skoven"