(Ath. Sjá einnig kenniljóð/heilræðavísur)
Heimsósómar/heimsádeilur var vinsæll kveðskapur á Íslandi á 16. 17. og 18. öld. Það kepptust skáld við að gagnrýna samtíma sinn og lifnaðarhætti samtíðarmanna sinna. Mjög lítið hefur varðveist af þjóðlögum við heimsósómakvæðin. Elsti íslenski heimsósóminn er eftir Skáld-Svein. Hann var uppi á 15. öld.
Titlar heimsósómanna:
Aldarháttur - Upphaf: „Áður á tíðum/ var tíska hjá lýðum." Eftir síra Hallgrím Pétursson sálmaskáld (f. 1614. d. 1674). Bragarhátturinn er leonískt hexametur.
Aldasöngur - Upphaf: „Upp vek þú málið mitt." Eftir Bjarna Jónsson Borgfirðingaskáld (Húsafells-Bjarna) (f. 1570. d. 1655).
Flærðarsenna - Upphaf: „Annars erindi rekur." Eftir síra Hallgrím Pétursson sálmaskáld (f. 1614. d. 1674).
Heims ósómi - Upphaf: „Hverfa happs tímar." Eftir síra Hallgrím Pétursson sálmaskáld (f. 1614. d. 1674).
Heimsósómi - Upphaf: „Hvað mun veröldin vilja." Eftir Skáld-Svein (f. á 15. öld). Þetta er elsti varðveitti heimsósóminn á Íslandi, undir sama bragarhætti og Ljómur Jóns Arasonar Hólabiskups. Lagið er færeyskt.
Heimsósómi - Upphaf: „Mörg er mannsins pína." Höf. ókunnur. Með Hjónasinnu lagi.
Nauðvörn - Upphaf: „Latur er lýður að vinna." Eftir óþekktan höfund. Kvæðið er varðveitt í handritinu Lbs. 376 8v0. Kvæðið er undir sama bragarhætti og Ljómur eftir Jón Arason Hólabiskup, síðasta kaþólska biskupinn á Norðurlöndunum.
Ómennskukvæði - Upphaf: „Hvað mun því valda/ að vorrar aldar/ er víl svo hátt?" Eftir Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Kristrún Matthíasdóttir frá Fossi í Hrunamannahreppi (f. 1923. d. 2011) og bróðir hennar, Haraldur Matthíasson sungu þetta kvæði á segulband um miðja síðustu öld. Þau virðast hafa verið þau einu á Íslandi sem kunnu þjóðlag við kvæðið.
Veraldar fláttskapur - Upphaf: „Svo sem gler sýnist mér." Eftir síra Hallgrím Pétursson sálmaskáld (f. 1614. d. 1674).
Ergelsis- og lífsleiðindavísur:
Veröld fláa sýnir sig - Þessa vísu með íslensku þjóðlagi lærði Bjarni Þorsteinsson þjóðlagasafnari í Húnavatnssýslum. Hún þekktist einnig víða á Norðurlandi.
Röð kvæðanna eftir upphöfum:
Skálholtskirkja Brynjólfs Sveinssonar biskups (f. 1605. d. 1675). Heimsósómar voru vinsælt yrkisefni í tíð Brynjólfs.