(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Skáld-Sveinn (f. um 1460. d. um 1530). Lítið sem ekkert er vitað um Skáld-Svein. Hann orti, að því er talið er, fyrsta heimsósómakvæðið. Kvæðið heitir einfaldlega Heimsósómi og er undir sama bragarhætti og Ljómur Jóns Arasonar Hólabiskups.
Kvæði eftir Skáld-Svein með lagboðum/þjóðlögum:
Heimsósómi - Upphaf: „Hvað mun veröldin vilja?/ hún veltist um svo fast." Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup segir þetta kvæði „gamalt" í Vísnabók sinni frá 1612