(Ath. Sjá einnig heimsósóma)
Kenniljóð, eða heilræðavísur er kveðskapur frá lærdómsöld sem hefur að geyma speki og spakmæli. Í slíkum kvæðum kepptust skáldin við að kenna almúganum siðferðislegar dyggðir. En í kvæðunum má einnig finna lesti í fari almúgans sem skáldin amast við, líkt og lesa má í heimsósómakvæðum. Þekktast kvæða í flokki kenniljóða og heilræðavísna er vafalaust Heilræðavísur eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674).
Kenniljóð og heilræðavísur með þjóðlögum:
Einvaldsóður - Upphaf: „Ljós fer að legi/ lýsa stjörnur." Eftir síra Guðmund Erlendsson (f. 1595. d. 1670). Kenniljóð undir fornyrðislagi. Varðveitt í alls 49 handritum. Hefur verið geysivinsælt ljóð.
Fabulæ Æsopi fáeinar - Upphaf: „Uxum fjórum á einum stað." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Gaman og alvara - Upphaf: „Oft er ís lestur." Eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Gott og ílt - Upphaf: „Ei er andvakan góð/ andvöku fylgir angursmergð." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Góðu börnin gera það - Upphaf: „Góðu börnin gera það." Sjá Jórunni Viðar, bls. 27. Sjá einnig barnagælur
Heilræðavísur - Upphaf: „Ungum er það allra best." Eftir síra Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Heilræðavísur út af fjórum mannkostum - Upphaf: „Fjórar frægar stýra/ frómleik, veg og sóma." Eftir síra Jón Bjarnason (f. um 1560. d. um 1633). Í Vísnabók Guðbrands frá 1612
Heimspekingaskóli - Upphaf: „Þegar fólki er þannig vart." Eftir Guðmund Bergþórsson (f. 1657. d. 1705)
Hústafla - Upphaf: „?" Eftir síra Jón Magnússon eldri í Laufási (f. 1601. d. 1675)
Spakmæli - Upphaf: „Vænt er að kunna vel að slá/ veiða fisk og róa á sjá." Eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)