(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Hallgrímur Pétursson (f. 1614. d. 1674). Hallgrímur er frægasta sálmaskáld Íslendinga fyrr og síðar. Hann orti hina frægu Passíusálma og önnur andleg kvæði. Hallgrímur var ekki síður veraldlegt skáld, orti drykkjuvísur (t. d. Ölerindi), heimsósómakvæði (Aldarháttur) og kvæði undir vikivakaháttum. Hallgrímur fæddist að öllum líkindum á Gröf á Höfðaströnd (Skagafjarðarsýslu), sonur hjónanna Péturs Guðmundssonar og Sólveigar Jónsdóttur. Hann stundaði nám við Frúarskóla í Kaupmannahöfn og átti Brynjólfur Sveinsson, seinna biskup í Skálholti, drjúgan þátt í því að koma honum til mennta. Árið 1636 fékk Hallgrímur þann starfa, þá enn námsmaður í Kaupmannahöfn, að taka á móti Íslendingum sem sloppið höfðu úr Algeirsborg en þar höfðu þeir verið í varðhaldi frá árinu 1627 í kjölfar Tyrkjaránsins. Kenndi Hallgrímur þeim kristni að nýju og íslenskt mál. Þar kynnist Hallgrímur Guðríði Símonardóttur, Tyrkja-Guddu, (f. 1598. d. 1682) sem að lokum verður eiginkona hans. Hallgrímur og Guðríður bjuggu á Reykjanesi um hríð en árið 1651 fær Hallgrímur Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar orti Hallgrímur Passíusálmana og „Allt eins og blómstrið eina" sem kann að vera einn fegursti greftrunarsálmur Íslendinga. Hallgrímur glímdi að öllum líkindum við holdsveiki þau síðustu ár á meðan hann lifði. Hallgrímur lést 27. október árið 1674.
Veraldlegur kveðskapur séra Hallgríms með lagboðum og þjóðlögum:
Aldarháttur - Upphaf: „Áður á tíðum var tíska hjá lýðum, svo tryggorðir kenndu." Heimsósómi
Ég gef honum fisk með flautum - Upphaf: „Ég gef honum fisk með flautum."
Fegurð veraldar mun hverfa - Upphaf: „Fróður beiða mig réð maður."
Fiskætavísur - Upphaf: „Afbragðsmatur er Ýsan feit."
Flærðarsenna - Upphaf: „Annars erindi rekur." Heimsósómi
Fór ég eitt sinn ferða minna á Skaga - Upphaf: „Fór ég eitt sinn ferða minna á Skaga."
Gaman og alvara - Upphaf: „Oft er ís lestur." Hinar frægu samhendur Hallgríms Péturssonar. Kenniljóð
Heilræðavísur - Upphaf: „Ungum er það allra best." Kenniljóð
Heimþrá - Upphaf: „Valt er þetta veraldar hjól."
Heims ósómi - Upphaf: „Hverfa happs tímar." Heimsósómi
Húsfreyjan setti' upp háan strók - Upphaf: „Húsfreyjan setti' upp háan strók."
Kjólkvæði - Upphaf: „Einu sinni átti ég kjól í smíðum."
Lögbókarvísur - Upphaf: „Kóngarnir drekka kryddað vín."
Misjafnt hamingjulán - Upphaf: „Barna lund er blint fætt."
Næturgisting - Upphaf: „Að byggðum eitt sinn bera seint mig náði."
Tóbakið hreint - Upphaf: „Tóbakið hreint, fæ gjörla ég greint."
Veraldar fláttskapur - Upphaf: „Svo sem gler sýnist mér." Heimsósómi
Þráðarleggsvísur - Upphaf: „Ekki kann ég upp á legg að vinda." Einnig eignuð Guðmundi Bergþórssyni
Ölerindi - Upphaf: „Nú er ég glaður á góðri stund." Drykkjuvísa
Sálmar og annar andlegur kveðskapur eftir séra Hallgrím:
Allt eins og blómstrið eina - Upphaf: „Allt eins og blómstrið eina."
Andi guðs eilífur er - Upphaf: „Andi guðs eilífur er." (sama lag er notað við Ísland farsælda frón)
Á Galíleu láði - Upphaf: „Á Galíleu láði/ ljóst í Kana stað." Sjá brúðkaupskvæði
Ég byrja reisu mín - Upphaf: „Ég byrja reisu mín/ Jesú í nafni þín." Sjá ávarpsorð og bænir
Gef ég mig allan á guðs míns náð - Upphaf: „Gef ég mig allan á guðs míns náð."
Gefðu, að móðurmálið mitt - Upphaf: „Gefðu, að móðurmálið mitt."
Gegnum Jesú helgast hjarta - Upphaf: „Gegnum Jesú helgast hjarta."
Guð bið ég nú að gefa mitt ráð - Upphaf: „Guð bið ég nú að gefa mitt ráð."
Guð komi sjálfur nú með náð - Upphaf: „Guð komi sjálfur nú með náð."
Morgunbæn - Upphaf: „Nú er ég klæddur og kominn á ról." Sjá ávarpsorð og bænir
Um fæðingu Krists, dómsdag og eilíft líf - Upphaf: „Hljómi raustin barna best." Sjá jólin
Ungmenna bænakorn á kvöld - Upphaf: „Nú vil ég enn í nafni þínu." Sjá ávarpsorð og bænir
Ungmenna bænakorn á morgna - Upphaf: „Í þínu nafni uppvaknaður." Sjá ávarpsorð og bænir
Vertu guð faðir, faðir minn - Upphaf: „Vertu guð faðir, faðir minn." Sjá ávarpsorð og bænir
Fæðingarstaður Hallgríms, Gröf á Höfðaströnd. Kirkjan á jörðinni, Grafarkirkja, er ein sú elsta á landinu (að nafninu til, gömlu viðirnir varðveittir inn á Þjóðminjasafni) og eina varðveitta stafkirkjan á Íslandi
Passíusálmar Hallgríms –> Smellið hér
eða smellið á mynd