Fyrirsögn:
Vertu guð faðir, faðir minn
Bæn
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Hallgrímur Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni.
2. Höndin þín, Drottinn, hlífi mér
þá heims ég aðstoð missi
en nær sem þú mig hirtir hér
hönd þína' eg glaður kyssi.
3. Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
4. Minn Jesú, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta' eg geymi,
sé það og líka síðast mitt
þá sofna' eg burt úr heimi.