(Ath. Sjá einnig þulur, man-langlokur, formúluvísur/keðjukvæði, vikivakakvæði, vikivaka og sagnadansa)
Dansþulur eru þulur sem virðast eiga það sameiginlegt að hafa verið notaðar við dans fyrr á öldum. Langflestar dansþulur heyra til íslenskra þjóðkvæða en þó með undantekningum.
Dansþulur með þjóðlögum:
Dansað var á Stapa í gær - Upphaf: „Dansað var á Stapa í gær / það var herlegur dans." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka.
Fúsintesþula - Upphaf: „Í miðjum garði axlar hann sín gullinskinn / hann Fúsintes." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka.
Gilsbakkaþula - Upphaf: „Kátt er á jólunum / koma þau senn." Kvæðið er flokkað með hér út af fyrirsögninni, annars er þetta eiginlega ekki þula heldur mun kvæðið vera undir sagnadansahætti. Eftir Kolbein Þorsteinsson í Miðdal (f. 1731. d. 1783). Sjá einnig þulur, jólin og vikivaka
Heyrði ég í hamrinum - Upphaf: „Heyrði ég í hamrinum / hátt var þar látið." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka
Smalaþula - Upphaf: „Vappaðu með mér Vala." Íslenskt þjóðkvæði. Kvæðið er flokkað með hér út af fyrirsögninni, annars er þetta eiginlega ekki þula heldur mun kvæðið vera undir vikivakakvæðahætti. Sjá einnig barnagælur, dýravísur, vikivakakvæði, vikivaka og þulur.
Stúlkurnar ganga sunnan með sjó - Upphaf: „Stúlkurnar ganga / sunnan með sjó." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka.
Tunglið skín á himni háa - Upphaf: „Tunglið skín á himni háa." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka.
Út gekk hún grænklædd - Upphaf: „Út gekk hún grænklædd / með gult undir fóðrið." Íslenskt þjóðkvæði. Sjá einnig þulur og vikivaka.