Fyrirsögn:
Út gekk hún grænklædd
Lagboði:
Íslenskt þululag
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Þulur; Dansþulur; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við
Heimild/kvæðið á prenti:
Út gekk hún grænklædd
með gult undir fóðrið.
Hún var sig svo dramblát,
hún vill ekki sitja
utan á silfurstóli,
ekki vill hún drekka
utan af silfurskálum,
(ekki vill hún drekka
utan það vín væri
er vaski riddarinn bæri).
Silki er hennar sorgarband,
og sjálfur skal hann leysa;
leysi sá sem leysa kann,
(og) það er hinn ungi Hoffmann.
Kysstu þína kæru,
og klappaðu henni með æru.