Aldarháttur er heimsósómakvæði eftir síra Hallgrím Pétursson sálmaskáld (f. 1614. d. 1674). Þetta gæti verið fyrsta kvæðið hér á landi sem er ort undir erlendum bragarháttum. Bragarhátturinn er forngrískur, kallast leonískt hexametur. Jón Oddsson Hjaltalín orti stælingu af þessu kvæði, það var birt í Fróðlegu ljóða-safni, gefið út af Grími Laxdal á Akureyri árið 1854.
Fyrirsögn:
Aldarháttur
Lagboði:
Tónn: Þorsteinn Björnsson. Gamli lagboðinn virðist vera glataður
Höfundur:
Hallgrímur Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Aldarháttur - Upphaf: „Áður á tíðum/ hjá Týlbúum stríðum." Eftir Jón Oddsson Hjaltalín (f. 1749. d. 1835)
Heimild/kvæðið á prenti:
Áður á tíðum
var tíska hjá lýðum,
svo tryggorðir kenndu,
frá barndómi blíðum
með fremdarhag fríðum
að frægðum sér vendu
af strengboga stríðum
í hárs elda hríðum
herskeytin sendu
eða á mar víðum
þeir skervallar skíðum
til skemmtunar renndu.
2. Manndómur mundi þá sveinar á sundi sóttust af afli,
einn sat í lundi hjá litfögru sprundi og lék sér að tafli,
hinn þar við undi sem hátt knöttur hrundi eða handsaxakafli,
lof þeim að dundi er frægð bar af fundi með fanndigulskafli.
3. Verfákum vöndum með bifroknum bröndum þeir bægðu frá láði,
byr söng í böndum á brimjarðar-gröndum þá beittu við gráði,
geir rumdi á röndum, rík þjóð í löndum rítar-él háði,
gnótt var í höndum, gekk lið af ströndum með gló-kraka-sáði.
4. Ýr bendum skutu, álmdrósir þutu í andfari þunnu,
burtstengur brutu, hátt skildir hrutu þar herfákar runnu,
benfossar flutu en lágt hinir lutu sem lítt verjast kunnu,
sæmdarráð hlutu og síns afla nutu þeir sigurinn unnu.
5. Armi hvertveggjum á liðs handar leggjum ljós mundar hreyfa,
glatt skein á seggjum með gimfoldar neggjum svo gramsrúnar leyfa,
digulfarmdreggjum á valborgar veggjum því vildu menn dreifa
í Hangan-Týrs hreggjum undateins eggjum ótrauðir veifa.
6. Ósæmdir biðu, þeir ofríki liðu og eigi sín hefndu,
djarfir fram riðu í dynsköglarhviðu og drengskapinn efndu,
tröllmarir skriðu að undasylgsiðu þar oddaþing stefndu,
lítt fyrir kviðu né sár þó þeim sviðu til sorgmæla nefndu.
7. Spakvitrir spáðu, þeir gjörla margs gáðu og glöggskyggnir váru,
kænt niður kljáðu nær kífþrætur háðu úr kappmálum skáru,
tryggva sig tjáðu, tálið forsmáðu sem trútt hjarta báru,
meir gáfu en þáðu; því víða náðu þjóðræmi kláru.
8. Ísland má sanna það átti völ manna þá allt stóð í blóma,
glæð sóttu hranna til ríkra kóngs ranna, vel reyndir að sóma,
ímunlauksanna þeir iðn þorðu kanna, svo yrki forn róma,
il þorns og tanna vóx æði varganna þar einn beitti skjóma.
9. Þeir báru hjálma, mjög drifna málma mardallar gráti,
brjóstfleinar fálma í sáreldasálma fram sóktu með gáti
spor mistar skálma og spjörflugur tálma nam spreytingja státi,
valjarðir jálma við uppdregna álma því allt var á bjáti.
10. Land lögum vörðu, vitug ráð gjörðu, svo vandræðin bættu,
fyrr frelsi kjörðu en Fáfnis skriðjörðu þó flest kostar ættu,
geði þá hörðu var hótað einörðu með hugprýði mættu,
manndáð ei spörðu við nýta seims njörðu ef nærri lá hættu.
11. Öld er nú snúin á aðra leið búin, þar yfir má klaga,
frækleiki lúinn af landi burt flúinn því líða menn baga,
röggsemdum rúin sést rýr vina trúin og rekin úr haga,
ágirnd fram knúin en grær lastagrúinn, flest gengur aflaga.
12. Ungdómsins æði þótt áður fyrr stæði til afreka hárra,
losti, sjálfræði, leti, svefn bæði þá lýst þeim nú skárra,
vits kulnar sæði á vinds hyrjar svæði, því veldur geð þrárra,
lesa góð fræði og læra siðgæði er lunderni fárra.
13. Dug lægir beima, sem faldbúin feima við fletin sér halda,
beitilung geima er bannað að sveima um bláröstu kalda,
menn mega dreyma til sörvar bliks seima en sjálfir þó gjalda,
hugprúðir heima því harðfengni gleyma við Hlakkar rof tjalda.
14. Nokkrir ef þræða um fáksrákir flæða til fremdar hagsbóta
frestskuldir fæða þá fé lítið græða má fordildin ljóta,
raupyrðin ræða þó rýr sé ástæða því reynslan vill þrjóta,
nýbreytni klæða en klénna siðgæða þeir kynningu hljóta.
15. Svo þverra listir því mjög eru misstir þeir menntirnar auki,
menn sitja tvistir og bragðhnuggnir, byrstir í búsorgar hnauki
allt eins og kvistir af hretvindi hristir á hráviðarlauki,
margur hver gistir því vesaldarvistir þó vílmóður þrauki.
16. Kostir sjást farnir því fólknárungarnir þeim framandi hlýða,
dússbræður svarnir og glysmálagjarnir svo gjörast nú víða,
fenjudragkvarnir í fémútusparnir um farveginn skríða,
innlendir barnir fá engar þó varnir, þeir ofríki líða.
17. Atburðir þrjóta til hraustlyndishóta í hugmóði sveina,
skútyrðum skjóta og rógmálum róta, það röggsemdir meina,
hrakspárnar hrjóta, þeir hver öðrum blóta en hinn grípur steina,
fjörlausnar fóta þá fýsr að njóta ef framar skal reyna.
18. Rauparinn telur þær vígs allar vélur ef veit hann sér granda,
á orði hrafn elur þann gráðsoltinn gelur við gný þrumuranda
en hræðslan þá kvelur ef kokkshnífagrélur þeim koma til handa,
í næstu hljóp felur sem nót flýi selur og niðri hélt anda.
19. Mannkostir lægðir en lastanna nægðir í landinu spretta,
útgengu frægðir þar innkomu slægðir og athafnir pretta,
náskyldir, mægðir með róg eru rægðir, svo reynst hefur þetta,
litlar fást hægðir og það væru þægðir ef því vildi létta.
20. Horfist til baga þá yfirmenn aga, þeim óhlýðnu spara,
múturnar draga sér liðsinni laga þó leynt eigi að fara,
ágirndin raga kann allt eins að klaga og einnig forsvara,
til og frá slaga þeir tálbrögðum haga, því taktu þér vara.
21. Hver vildi greina það allt efni meina sem áfalla náði?
Hljótt sumir kveina en hjá sér þó leyna það hugboðið þjáði,
innbúa steina má braut snúa beina úr byr-hveðru gráði,
sundferjan seina þá átti grér eina að orðstöðvarláði.
22. Margt mætti henda sá vill hug til venda og viðkannast næði
efni báginda sem oss gjöra að benda og auka nú mæði,
Aldarhátt kennda í sýn margra senda má segja vandræði,
allt tekur enda, ég læt þar við lenda og lykta svo kvæði.