Fyrirsögn:
Hverfa happs tímar
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag, það sama og Administrator Ari ofl.
Höfundur:
Hallgrímur Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hverfa happs tímar,
höfuð sundlar kvilla,
glossa gnaps brímar
get ég sjónir villa,
svipan straffs stímar,
stjarnan spá mun fylla,
og athæfið illa.
2. Ó að tár áköf
af augum jafnan rynni,
eða nár í gröf
yndi að hvílu sinni,
synda sár upphöf
sálu ógna minni,
ef kannast við kynni.
3. Ágirnd grá æddi
yfir fjöllin háu,
ótrú flá flæddi
fróns hálsana smáu;
þrjóskan þrá þræddi,
það nær blindir sáu
þar lægðir lágu.
4. Visku vakt sofnar,
veraldar bjallan klingir;
drottna makt dofnar,
dalaklukkan hringir;
stóra prakt stofnar,
sá stimpla málminn pyngir;
því margt að þyngir.
5. Orð herrans aktast
í allt of litlu gildi;
þverúð manns maktast
meir en vera skyldi;
synda frans fraktast;
frón og héruð fylldi
tráss-viljinn trylldi.
6. Von er því, von er
verði guð að hefna;
hætta ný nú hér
nærri vill oss stefna;
frá ég sný, fjær fer
framar meir af nefna
rök rauna efna.