Administrator Ari er kvæði eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841) sem sungið var í tvísöng. Þetta var vinsæll tvísöngur í Bessastaðaskóla en Ari sem nefndur er í kvæðinu er Ari Sæmundsen (f. 1797. d. 1876) umboðsmaður að Munkaþverá sem gaf m.a. út ritið Leiðarvísir til að spila á langspil
Fyrirsögn:
Administrator Ari
Lagboði:
Íslenskt tvísöngslag
Höfundur:
Bjarni Thorarensen (f. 1786. d. 1841)
Kvæðagrein:
Tvísöngvar; Skólasöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Árið nýtt nú á - Upphaf: „Árið nýtt nú á". Eftir síra Jón Þorsteinsson píslarvott (f. 1570. d. 1627). Í Hymnodiu Sacra.
Barmahlíð - Upphaf: „Hlíðin mín fríða". Eftir Jón Thoroddsen (f. 1818. d. 1868).
Heims ósómi - Upphaf: „Hverfa happs tímar". Eftir síra Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá heimsósóma.
Hvíld er þægust þjáðum - Upphaf: „Hvíld er þægust þjáðum". Eftir síra Kristján Jóhannsson í Stafholti (f. 1737. d. 1806).
Integer vitae - Upphaf: „Integer vitae/ scelerisque purus". Eftir Quintus Horatius Flaccus. Að sögn Páls Melsteds var þetta kvæði mikið sungið í Bessastaðaskóla. Kvæðið var sungið í tvísöng. Sjá skólasöngva.
Jam satis terris - Upphaf: „Jam satis terris". Eftir Quintus Horatius Flaccus. Kvæðið var sungið í tvísöng. Sjá skólasöngva.
Kvæði Hórazar - Upphaf: „Hvert sinn á haf blá/ halda maður ei má". Eftir Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Sjá Íslenzk þjóðlög Bjarna bls. 541. Einnig kvæðabók Stefáns II, bls. 162
Langar mig í lífshöll - Upphaf: „Langar mig í lífshöll". Eftir Bjarna Jónsson Borgfirðingaskáld (f. 1560. d. 1640)
Sólin rann, ljós leið - Upphaf: „Sólin rann, ljós leið".
Þökk sé þér, góð gjörð - Upphaf: „Þökk sé þér, góð gjörð".
Heimild/kvæðið á prenti:
Administrator Ari
í æru dingli rólum;
hann þótt hjeðan fari
í heiðurs skrýddum kjólum,
minning hans æ hjari
og hangi ofar sólum.
„Amen á Hólum!"