Fyrirsögn:
Barmahlíð
Lagboði:
Lag eftir Flemming. Ss. I, 51.
Höfundur:
Jón Thoroddssen (f. 1818. d. 1868)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Administrator Ari - Upphaf: „Administrator Ari/ í ærudingli rólum." Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Kvæðið var sungið í tvísöng
Árið nýtt nú á - Upphaf: „Árið nýtt nú á". Eftir síra Jón Þorsteinsson píslarvott (f. 1570. d. 1627). Í Hymnodiu Sacra.
Heims ósómi - Upphaf: „Hverfa happs tímar". Eftir síra Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá heimsósóma.
Hvíld er þægust þjáðum - Upphaf: „Hvíld er þægust þjáðum". Eftir síra Kristján Jóhannsson í Stafholti (f. 1737. d. 1806).
Integer vitae - Upphaf: „Integer vitae/ scelerisque purus". Eftir Quintus Horatius Flaccus. Að sögn Páls Melsteds var þetta kvæði mikið sungið í Bessastaðaskóla. Kvæðið var sungið í tvísöng. Sjá skólasöngva.
Jam satis terris - Upphaf: „Jam satis terris". Eftir Quintus Horatius Flaccus. Kvæðið var sungið í tvísöng. Sjá skólasöngva.
Kvæði Hórazar - Upphaf: „Hvert sinn á haf blá/ halda maður ei má". Eftir Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Sjá Íslenzk þjóðlög Bjarna bls. 541. Einnig kvæðabók Stefáns II, bls. 162
Langar mig í lífshöll - Upphaf: „Langar mig í lífshöll". Eftir Bjarna Jónsson Borgfirðingaskáld (f. 1560. d. 1640)
Sólin rann, ljós leið - Upphaf: „Sólin rann, ljós leið". Eftir Magnús Stephensen (f. 1762. d. 1833).
Tak af oss faðir - Upphaf: „Tak af oss faðir...". Eftir síra Ólaf Jónsson á Söndum (f. 1560. d. 1627)
Þökk sé þér, góð gjörð - Upphaf: „Þökk sé þér, góð gjörð". Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688)
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hlíðin mín fríða,
hjalla meður græna,
og blásgresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir besta.
2. Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skaust úr lautu,
skreið und gráa steina.
Leitandi leyna.
3. Blómmóðir besta,
bestu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildu hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa.
4. Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali.