Fiskurinn hefur fögur hljóð
finnst hann oft á heiðum;
ærnar renna eina slóð
eftir sjónum breiðum
– Bjarni Jónsson Borgfirðingaskáld.
Úr Öfugmælavísum
(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Bjarni Jónsson Borgfirðingaskáld (f. 1560. d. 1640) var íslenskt skáld. Bjarni var stundum kallaður Bjarni skáldi eða Húsafells-Bjarni en talið er að hann hafi alist upp á Húsafelli í Borgarfirði. Bjarni var eitt mikilvirkasta skáld samtíma síns og hafði mikil áhrif á Hallgrím Pétursson sálmaskáld og Hallgrímur leit upp til hans. Hann er einnig talinn fyrstur skálda hér á landi til þess að yrkja öfugmælavísur. Þá orti hann heimsósómakvæði á borð við Aldasöng.
Kvæði Bjarna með þjóðlögum:
Aldasöngur - Upphaf: „Upp vek þú málið mitt/ minn guð hljóðfærið þitt." Heimsósómakvæði.
Ein góð gömul söngvísa um eymdir þessa stundlega lífs og sælu eilífs lífs - Upphaf: „Langar mig í lífs höll/ leiðist mér heims ról."
Gæskuríkasti græðari minn - Upphaf: „Gæskuríkasti græðari minn/ gef mér í hjartað andann þinn." Sálmur
Heyr mín hljóð - Upphaf: „
Minningarkvæði um Jón Grímsson - Upphaf: „Nokkur ungdómsár, fyrir elli/ ólst ég upp á Húsafelli." Vikivakakvæði um Jón Grímsson á Húsafelli, seinna í Kalmanstungu
Ó Jerúsalem, upp til þín - Upphaf: „Ó Jerúsalem, upp til þín."
Öfugmælavísur - Upphaf: „Dvals úr nausti dvergafar." (Sjá Jón Þorkelsson, Om digtningen, þar eru um 90 öfugmælavísur eftir Bjarna)