Nauðvörn kallast þessi heimsósómi. Hann er varðveittur í handritinu LBS 376 8v0. Kvæðið er undir sama bragarhætti og Ljómur eftir Jón Arason Hólabiskup. Færeyingar varðveita þjóðlag við nennan bragarhátt og getur hann því verið notaður við þetta kvæði.
Titill:
Nauðvörn
Lagboði:
Tillaga að lagboða: Færeyska lagið við Ljóm eftir Jón Arason Hólabiskup
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Davíðsdiktur - Upphaf: „Heyr mig, himna stýrir,/ herrann allra greina," Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550). Helgikvæði
Heimsósómi - Upphaf: „Hvað mun veröldin vilja?/ hún veltist um svo fast." Eftir Skáld-Svein (f. um 1460. d. um 1530). Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup segir þetta kvæði „gamalt" í Vísnabók sinni frá 1612
Ljómur - Upphaf: „Hæstur heilagur andi/ himnakóngurinn sterki." Eftir Jón Arason Hólabiskup (f. 1484. d. 1550). Helgikvæði
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Latur er lýður að vinna,
löstuð bezta fæða
og möglað öllu á mót.
Skjótt má forsið finna
og frábært volsið klæða,
bæði hjá þý og þrjót.
Nú þrælarnir herrar vilja heita,
húsbændunum þrjóskir ei skeyta,
allt hið bezta verður þeim þó veita,
vill því fylgja eyðilegging sveita.