(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768) er eitt okkar frægasta skáld á tímum upplýsingarinnar og boðberi hennar á Íslandi. Hann fæddist á Svefneyjum á Breiðafirði og var bróðir Rannveigar, eiginkonu Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal. Eggert drukknaði í brúðkaupsför sinni, ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur, á Breiðafirði árið 1768. Bróðursonur Eggerts var Finnur Magnússon (f. 1781. d. 1847) leyndarskjalavörður, prófessor og rúnasérfræðingur við Kaupmannahafnarháskóla. Bróðir Eggerts var Jón Ólafsson úr Svefneyjum, sem söng forn kvæði fyrir Frakka á 18. öld. Þá var Eggert mágur síra Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal (f. 1724. d. 1794).
Eggert Ólafsson þótti mjög söngelskur, samanber það sem ritað er í formála kvæðabókar hans frá árinu 1832.
Kvæði Eggerts Ólafssonar með þjóðlögum:
Brúðkaupskvæði II – Kvæði fyrir velkomanda minni - Upphaf: „Hrygðin á burt, en gleði' gaman." Brúðkaupskvæði
Brúðkaupskvæði V – Nær brúður er mey, og hin fremsta forgangs-píka sýngr, þá má brúka þetta vers - Upphaf: „Ljúfur og tregur/ leið þessa ganga vann." Brúðkaupskvæði
Brúðkaupskvæði X – Saungr við brúðgáng úr stofu til sængr - Upphaf: „Tvenn er/ tíðin daga og nátta." Brúðkaupskvæði
Búnaðarbálkur - Upphaf: „Þér sudda-drunga daufir andar". Sjá kenniljóð
Flösku-kveðjur - Upphaf: „Enn skal enni hlúna/ ertu komin núna." Drykkjuvísur
Gaman-bögur - Upphaf: „Spjátrungarnir spranga/ –leggjum land undir fót–." Gamankvæði undir sagnadansahætti, hefur sama viðlag og Tófu kvæði.
Hafnarsæla - Upphaf: „Förum vér til gleði að ganga/ gaman þar og lyst að fanga." Kvæði undir vikivakakvæðahætti.
Hegra kvæði - Upphaf: „Óðinn kóngur Ása var/ afguð Norðurlanda."
Helblinda - Upphaf: „Forlögunum fresta má,/ en fyrirkomast aldrei."
Hrafna-hróður - Upphaf: „Á mörgu spakir markið henda;/ mun það sama hérna lenda."
Höddu-Ríma - Upphaf: „Elizabeth eltu Ránar allar dætur/ minnast vildu vífin kátu."
Ísland með ermahnöppum - Upphaf: „Islenzkan með ermahnappa."
Íslands minni - Upphaf: „Ísland ögrum skorið/ eg vil nefna þín." Ættjarðarkvæði
Íslands sæla - Upphaf: „Út um sveitir Ísalands." Kvæði undir vikivakakvæðahætti
Jarpur skeiðar fljótur frár - Upphaf: „Jarpur skeiðar fljótur frár." Hestavísur
Lysthús-kvæði - Upphaf: „Undir bláum sólarsali/ Sauðlauks upp í lygnum dali." Kvæði undir vikivakakvæðahætti.
Píkuskrækur - Upphaf: „Ó, mín/ hjartans ástar baugabrú." Ástarljóð. Kvæðið er sungið í tvísöng
Sótt og dauði íslenskunnar - Upphaf: „Um þá tíð, sem er í dag."
Um leiða síns föðurlands - Upphaf: „Er það satt, sem nokkrir telja mér."
Um sigling frá Íslandi til Kaupmannahafnar 1764 - Upphaf: „Unnar göltur undir lá." Sjá sjómannavísur
Röð kvæðanna eftir upphöfum:
Koparrista af drukknun Eggerts Ólafssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Úr riti Ólafs Ólafssonar frá árinu 1769