Gaman-bögur eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768). Gjörðar sumarið 1759 á leiðinni frá Friðriksbergi inn til bæjarins í Höfn „á hvörri þeir bræður komu í gaman-keppni, hvörr fyrr uppgæfist að bæta við." Við þetta kvæði er notað þekkt viðlag „...leggjum land undir fót" sem m.a. var notað við sagnadansinn Tófu kvæði.
Fyrirsögn:
Gaman-bögur
Lagboði:
Það sama og við Tófu kvæði
Höfundur:
Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Kvæðagrein:
Sagnadansaháttur. Sjá sagnadansa
Kvæði undir sama bragarhætti:
Inpromptu - Upphaf: „Lactantius syngur ljóta psálma." Sagnadans
Tófu kvæði - Upphaf: „Tófa situr inni." Sagnadans
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Spjátrungarnir spranga,
-leggjum land undir fót-
völum stéttir stanga
-á Danamót og dans vill hún heyra.
2. Eggi meður manga,
-leggjum land undir fót-
um grjót óstuddir ganga,
-á Danamót og dans vill hún heyra.
3. Úr runnum víðra vanga
-leggjum land undir fót-
leggur ljúfan anga
-á Danamót og dans vill hún heyra.
4. Á hægri hlið til þanga
-leggjum land undir fót-
skríða refar ranga
-á Danamót og dans vill hún heyra.
5. Bakvið meyjar manga
-leggjum land undir fót-
hvar ágæt eplin hanga
-á Danamót og dans vill hún heyra.
6. Fyrir fýra svanga,
-leggjum land undir fót-
þarft er að fara þangað
-á Danamót og dans vill hún heyra.
7. En í álfu fanga
-leggjum land undir fót-
höfum Hafnar dranga
-á Danamót og dans vill hún heyra.
8. Með því brag að banga
-leggjum land undir fót-
styttum leið svo langa.
-á Danamót og dans vill hún heyra.