(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Finnur Magnússon (f. 1781. d. 1847) var íslenskur fornfræðingur og rúnafræðingur sem starfaði í Kaupmannahöfn. Finnur var einnig leyndarskjalavörður fyrir Kaupmannahafnarháskóla. Hann taldi sig hafa fundið fornar rúnir í Runamo í Svíðþjóð og gat greint ljóð út frá þeim með því að lesa þær afturábak með spegli. Jarðvísindamenn telja nú að þessar „rúnir" séu jökulrákir. Nú á dögum er talið að ekki standi steinn yfir steini í þessum rannsóknum hans sem og mörgum öðrum rannsóknum sem hann hafði umsjón með. Finnur var einarður stuðningsmaður Danakonungs og var alfarið á móti valdaráni Jörundar Hundadagakonungs. Föðurbróðir Finns var Eggert Ólafsson boðberi upplýsingarinnar á Íslandi og Jón Ólafsson Svefneyingur. Finnur Magnússon gaf einnig út hinar frægu Stúdentavísur árið 1819.
Kvæði Finns með þjóðlögum:
Íslands ellivæla - Upphaf: „Ísland bestum blóma/ búið fyrrum var."