Íslands elli-væla eftir Finn Magnússon (f. 1781. d. 1847) prófessor og leyndarskjalavörð við Kaupmannahafnarháskóla. Finnur orti þetta kvæði eftir að Magnús Stephensen (f. 1762. d. 1833) úthýsti djöflinum í sálmabók sinni sem hann prentaði í Leirá árið 1801. Var sálmabókin jafnan kölluð Leirgerður. Þá var Finnur ungur og vann við prentverkið þar.
Fyrirsögn:
Íslands elli-væla
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag. Kristrún Matthíasdóttir (1923– 2011) frá Fossi í Hrunamannahreppi syngur lagið við kvæðið á segulband. Það er sömu ættar og lagið við Á Galíleu láði eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá Bjarna Þorsteinsson 1906–1909, bls. 605. Kristrún syngur þetta sama lag við Á fjallatindum fríðum eftir Steingrím Thorsteinsson.
Höfundur:
Finnur Magnússon (f. 1781. d. 1847)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á fjallatindum fríðum - Upphaf: „Á fjallatindum fríðum/ fönnin hvíta skín." Eftir Steingrím Thorsteinsson (f. 1831. d. 1913)
Á Galíleu láði - Upphaf: „Á Galíleu láði/ ljóst í Kana stað." Eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá brúðkaupskvæði
Börnin segja og syngja svo á jóladag - Upphaf: „Börnin segja og syngja/ svo á jóladag." Vers með lagi úr fórum Sunnevu Markúsdóttur á Möðruvöllum (f. 1752. d. 1833). Sjá jólin
Græðarinn lýðs og landa - Upphaf: „Græðarinn lýðs og landa." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Heyr mig himins og láða - Upphaf: „Heyr mig himins og láða." Höf. ókunnur. Maríukvæði frá miðöldum, illa varðveitt. Sjá Helgikvæði.
Heyrðu hjálpin skæra - Upphaf: „Heyrðu hjálpin skæra." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Hjónasinna - Upphaf: „Æðstur einvalds herra." Eftir síra Einars Sigurðsson í Heydölum (f. 1539. d. 1626).
Hugraun - Upphaf: „Það er upphaf dyggða." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði
Íslands minni - Upphaf: „Ísland ögrum skorið/ eg vil nefna þig." Eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768).
Laurentíusdiktur - Upphaf: „Heyr þú heilagi andi/ er himna stýrir láð." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Maríugrátur - Upphaf: „Blómstrið brúða og kvenna." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Mörður týndi tönnum - Upphaf: „Mörður týndi tönnum." Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Úr Brennu-Njálssögu
Prestur setti saman - Upphaf: „Prestur setti saman/ svei mér, ef ég lýg!" Eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1829).
Tómasdiktur - Upphaf: „Vil eg hins bjarta blóma." Höf. ókunnur.
Um heiðurs mey vil eg hefja - Upphaf: „Um heiðurs mey vil eg hefja." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Um Þorgeirs ólöglega byggingu - Upphaf: „Ekki er langt að leita/ lagagreinum að." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688).
Vegsemd allra vífa - Upphaf: „Vegsemd allra vífa." Höf. ókunnur. Kvæðið er ort eftir siðaskiptin. Sjá Helgikvæði.
Ölvísa - Upphaf: „Brennivínsbollar tríta." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Sjá drykkjuvísur.
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Ísland bestum blóma
búið fyrrum var,
fullt með flot og rjóma
feitt afkvæmi bar;
prestar studdi blessan bú,
djöfli, víti, ár og álf,
öldin trúði sú.
2. Nú er öldin önnur;
öll af dyggðum snauð;
hellt er hlandi á könnur,
heilög trú er dauð;
allt er komið í ærsl og busl,
andleg sálma- er orðin bók
andskotalaust rusl.