Fyrirsögn:
Prestur setti saman
Lagboði:
Sama lag og notað er við Íslands elli-vælu eftir Finn Magnússon leyndarskjalavörð (f. 1781. d. 1847)
Höfundur:
Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819)
Kvæðagrein:
Skólasöngvar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á fjallatindum fríðum - Upphaf: „Á fjallatindum fríðum/ fönnin hvíta skín." Eftir Steingrím Thorsteinsson (f. 1831. d. 1913)
Á Galíleu láði - Upphaf: „Á Galíleu láði/ ljóst í Kana stað." Eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá brúðkaupskvæði
Bændaháttur - Upphaf: „Lítinn óð skal efna." Höf. ókunnur (ort árið 1677).
Börnin segja og syngja svo á jóladag - Upphaf: „Börnin segja og syngja/ svo á jóladag." Vers með lagi úr fórum Sunnevu Markúsdóttur á Möðruvöllum (f. 1752. d. 1833). Sjá jólin
Græðarinn lýðs og landa - Upphaf: „Græðarinn lýðs og landa." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Heyr mig himins og láða - Upphaf: „Heyr mig himins og láða." Höf. ókunnur. Maríukvæði frá miðöldum, illa varðveitt. Sjá Helgikvæði.
Heyrðu hjálpin skæra - Upphaf: „Heyrðu hjálpin skæra." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Hjónasinna - Upphaf: „Æðstur einvalds herra." Eftir síra Einars Sigurðsson í Heydölum (f. 1539. d. 1626).
Hugraun - Upphaf: „Það er upphaf dyggða." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði
Íslands ellivæla - Upphaf: „Ísland bestum blóma/ búið fyrrum var." Eftir Finn Magnússon (f. 1781. d. 1847).
Íslands minni - Upphaf: „Ísland ögrum skorið/ eg vil nefna þig." Eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768).
Laurentíusdiktur - Upphaf: „Heyr þú heilagi andi/ er himna stýrir láð." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Maríugrátur - Upphaf: „Blómstrið brúða og kvenna." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Mörður týndi tönnum - Upphaf: „Mörður týndi tönnum." Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Úr Brennu-Njálssögu
Tómasdiktur - Upphaf: „Vil eg hins bjarta blóma." Höf. ókunnur.
Um heiðurs mey vil eg hefja - Upphaf: „Um heiðurs mey vil eg hefja." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Um Þorgeirs ólöglega byggingu - Upphaf: „Ekki er langt að leita/ lagagreinum að." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688).
Vegsemd allra vífa - Upphaf: „Vegsemd allra vífa." Höf. ókunnur. Kvæðið er ort eftir siðaskiptin. Sjá Helgikvæði.
Ölvísa - Upphaf: „Brennivínsbollar tríta." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Sjá drykkjuvísur.
Heimild/kvæðið á prenti:
Prestur setti saman,
svei mér, ef ég lýg!
vondslig vísnagaman
og vann ei fyrir gýg;
prófastsdæmi fyrir það fann;
nær sem verri býr til brag
biskup verður hann.