(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Síra Einar Sigurðsson í Heydölum, eða Eydölum (f. 1539. d. 1626) var helsta trúarskáld þjóðarinnar á 16. og 17. öld. Hann var góður vinur (um tíma) og samstarfsmaður Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups og vann með honum að útgáfu Vísnabókarinnar 1612. Fyrsti hluti þeirrar bókar hefur að geyma kvæði andlegs efnis. Fyrri hluti bókarinnar hefur að geyma kveðskap eftir Einar sjálfan sem mörg voru ort undir vikivakakvæðaháttum.
Síra Einar Sigurðsson er ættfaðir hinna austfirsku skálda, faðir Ólafs Einarssonar (f. 1573. d. 1651) prests í Kirkjubæ í Hróarstungu og afi Stefáns Ólafssonar í Vallanesi (f. 1619. d. 1688) og Bjarna Gissurarsonar í Þingmúla (f. 1621. d. 1712).
Kvæði Einars með þjóðlögum og sálmalögum:
Guðspjallsvísur af þrefaldri freistni – Guðspjallavísur Einars í Eydölum - Upphaf: „Vaki þér upp sem viljið heita" (Lagboði: Passíusálmur nr. 30). Kvæðið er varðveitt í Vísnabókinni 1612.
Einn huggunarsamlegur bænasálmur til trúarstyrkingar í stórum mannraunum - Upphaf: „Herra Jesú, þitt heilagt nafn" (lagboði: Óvinnanleg borg er vor Guð eða Passíusálmur nr. 20. Sjá einnig Ein festeburg eftir Johannes Eccard). Kvæðið er í Vísnabókinni 1612.
Einn sálmur - Upphaf: „Heyr þú nú, Guð minn góði" (lagboði: Einn herra eg best ætti eða Passíusálmur nr. 6). Kvæðið er í Vísnabókinni 1612.
Einn nýárssálmur - Upphaf: „Yfirvald engla sveita" (Lagboði: Gæsku Guðs vér prísum eða Passíusálmur nr. 7). Sjá einnig jólin.
Einn sálmur um upprisusigurinn Kristí - Upphaf: „Einum stríðsherra æðsta" (lagboði: Einn herra eg best ætti eða Passíusálmur nr. 6). Kvæðið er í Vísnabókinni 1612.
Einum best eg unni - Upphaf: „Einum best eg unni/ er minn Jesús sá."
Hér á eftir fylgja vísur um skírnina - Upphaf: „Heyri guðs börn um heiminn vítt" (Lagboði: Passíusálmur nr. 24 og „Frá mönnum"). Í Sálmabók Guðbrands frá 1589.
Hjónasinna - Upphaf: „Æðstur einvalds herra."
Kvæði af Naaman sýrlenska - Upphaf: „Hlýði þeir sem henda gaman að kvæðum." Kvæðið er í Vísnabókinni 1612. Sjá Bjarna Þorsteinsson, bls. 534.
Kvæðið af stallinum Kristí - Upphaf: „Nóttin var sú ágæt ein". Kvæðið er í Vísnabókinni 1612. Kvæðið er ort undir vikivakakvæðahætti. Sjá einnig jólin
Súsönnukvæði - Upphaf: „Himnasmið ég hæstan bið að hjálpa mér". Kvæðið er varðveitt í Vísnabókinni 1612, gefið út af Guðbrandi Þorlákssyni Hólabiskupi. Sjá BÞ 1906-1909, bls. 613
XCI. sálmur. Qui habitat. Kennir að setja trú og traust til Guðs í stórum plágum eða öðrum háskasemmdum - Upphaf: „Hvör sem að reisir hæga byggð" (Lagboði: „Frá mönnum" eða Passíusálmur nr. 24)
Heydalir (Eydalir) í Breiðdal árið 1953