(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Bjarni Gissurarson (f. 1621. d. 1712) var einn hinna austfirsku skálda og barnabarn séra Einars Sigurðssonar í Heydölum (f. 1539. d. 1626). Hann var sonur Gissurar Gíslasonar prests í Þingmúla og Guðrúnar Einarsdóttur. Bjarni varð stúdent úr Skálholtsskóla árið 1643. Eftir útskrift þjónaði hann Brynjólfi Sveinssyni biskupi yfir Skálholti um hríð þar til hann fékk Þingmúla árið 1647 að föður sínum látnum.
Kvæði Bjarna Gissurarsonar með þjóðlögum:
Hrakfallabálkur - Upphaf: „Hjöluðu tveir í húsi forðum/ hlýddi ég gjörla þeirra orðum."
Þingmúlakirkja, vígð árið 1865