(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Ólafur Einarsson (f. 1573. d. 1651). Prestur og skáld í Kirkjubæ í Hróarstungu (Norður- Múl. Austfjörðum). Einn hinna austfirsku skálda og sonur Einars Sigurðssonar í Heydölum (f. 1539. d. 1626). Sonur Ólafs var Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Ólafur orti sálma, heimsósómakvæði og gamanvísur. Talið er að hann hafi ort drykkjuvísuna Krúsarlögur kveikir bögur.
Kvæði Ólafs Einarssonar með þjóðlögum:
Allt mitt ráð til guðs eg set – Eftir Ólaf Einarsson í Kirkjubæ í Hróarstungu. Þessi sálmur er í Hymnodiu Sacra. Sama lag og við Guðs son kallar: Komið til mín
Íslands árgalinn - Upphaf: „Allsvaldandi engla og manna/ eðla kóngur, faðir, guð."
Krúsarlögur kveikir bögur - Upphaf: „Krúsarlögur/ kveikir bögur/ og kvæðin smá." Drykkjuvísa