Fyrirsögn:
Hugraun
Lagboði:
Óvíst. Má nota lögin við Á Galíleu láði, Mörður týndi tönnum eða Börnin segja og syngja.
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á fjallatindum fríðum - Upphaf: „Á fjallatindum fríðum/ fönnin hvíta skín." Eftir Steingrím Thorsteinsson (f. 1831. d. 1913).
Á Galíleu láði - Upphaf: „Á Galíleu láði/ ljóst í Kana stað." Eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674). Sjá brúðkaupskvæði
Bændaháttur - Upphaf: „Lítinn óð skal efna." Höf. ókunnur (ort árið 1677).
Börnin segja og syngja svo á jóladag - Upphaf: „Börnin segja og syngja/ svo á jóladag." Vers með lagi úr fórum Sunnevu Markúsdóttur á Möðruvöllum (f. 1752. d. 1833). Sjá jólin.
Græðarinn lýðs og landa - Upphaf: „Græðarinn lýðs og landa." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Heyr mig himins og láða - Upphaf: „Heyr mig himins og láða." Höf. ókunnur. Maríukvæði frá miðöldum, illa varðveitt. Sjá Helgikvæði.
Heyrðu hjálpin skæra - Upphaf: „Heyrðu hjálpin skæra." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Hjónasinna - Upphaf: „Æðstur einvalds herra." Eftir síra Einars Sigurðsson í Heydölum (f. 1539. d. 1626).
Hugraun - Upphaf: „Það er upphaf dyggða." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði
Íslands ellivæla - Upphaf: „Ísland bestum blóma/ búið fyrrum var." Eftir Finn Magnússon (f. 1781. d. 1847)
Íslands minni - Upphaf: „Ísland ögrum skorið/ eg vil nefna þig." Eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768).
Laurentíusdiktur - Upphaf: „Heyr þú heilagi andi/ er himna stýrir láð." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Maríugrátur - Upphaf: „Blómstrið brúða og kvenna." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Mörður týndi tönnum - Upphaf: „Mörður týndi tönnum." Eftir Bjarna Thorarensen (f. 1786. d. 1841). Úr Brennu-Njálssögu
Prestur setti saman - Upphaf: „Prestur setti saman/ svei mér, ef ég lýg!" Eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1829).
Tómasdiktur - Upphaf: „Vil eg hins bjarta blóma." Höf. ókunnur.
Um heiðurs mey vil eg hefja - Upphaf: „Um heiðurs mey vil eg hefja." Höf. ókunnur. Sjá Helgikvæði.
Um Þorgeirs ólöglega byggingu - Upphaf: „Ekki er langt að leita/ lagagreinum að." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688).
Vegsemd allra vífa - Upphaf: „Vegsemd allra vífa." Höf. ókunnur. Kvæðið er ort eftir siðaskiptin. Sjá Helgikvæði.
Ölvísa - Upphaf: „Brennivínsbollar tríta." Eftir síra Stefán Ólafsson í Vallanesi (f. 1619. d. 1688). Sjá drykkjuvísur.
Útgáfur:
Jón Helgason, 1938, bls. 168–179.
1. Það er upphaf dyggða
að elska Jesúm Krist.
Höldar heimsins byggða
heiðri þig með lyst.
Himnakónginn, hjálparvon,
af öllu trausti eg vil dýrka
Jesúm Maríuson.
(Kvæðið er í heildina 52 erindi)
Heimildir:
Jón Helgason. (1938). Íslenzk miðaldakvæði II. København, Ejnar Munksgaard.