Fyrirsögn:
Brúðkaupskvæði V; Ljúfur og tregur
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Áminning til stéttanna. Upphaf: „Yfirvald vísa, vors guðs þjónustumenn." Höf. ókunnur. Í tónlistarhandritinu Hymnodiu Sacra
Ýmissra stétta - Upphaf: „Ýmissra stétta." Eftir Odd Oddsson á Reynivöllum í Kjós (f. 1565. d. 1649).
Heimild/kvæðið á prenti:
V. Nær brúðr er mey, og hin fremsta forgángs-píka sýngr, þá má brúka þetta vers:
Ljúfur og tregur
leið þessa ganga vann;
það er vor vegur,
það segir náttúran;
skaparinn hana skapti, þó
skyldum vér neita því?
Ávöxtum jarðar fengið frjó
förlar og vex á ný;
ef villumst eigi
út af skaparans vegi,
förum vel, oss færir hans
forsjón til þessa ranns.
Þetta kvæði hefur sama bragarhátt og Áminning til stéttanna. Sjá bls. 348 í Íslenzkum þjóðlögum Bjarna Þorsteinssonar.