Fyrirsögn:
Brúðkaupskvæði II – Kvæði fyrir velkomanda minni
Lagboði:
Íslenskt þjóðlag
Höfundur:
Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Kvæðagrein:
Brúðkaupskvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Ég hef svo margan morgun vaknað - Upphaf: „Ég hef svo margan morgun vaknað." Eftir Pál Ólafsson (f. 1827. d. 1905). Sjá drykkjuvísur
Heimild/kvæðið á prenti:
Eggert Ólafsson 1832, bls. 181–182.
Sjá einnig Brúðkaupssiðabók hans.
1. Hrygðin á burt, en gleði' og gaman,
sem guði' og mönnum þekkast er,
komi til vor, er sitjum saman,
samhuga tali' og drekki hverr!
:: Því slíkum smyrslum mega menn
mýkja veraldar andstreymin. ::
2. Hvort sem vér etum, eða drekkum,
eða hvað sem vér höfumst að,
hófsemin skal með skamti þekkum
skilníngarvitum marka stað;
:: óhófið beikan einatt gat
allrasætastan verkað mat. ::
3. Sorg úr ofdrykkju gjörir gleði
gárúngaskap og þvíumlíkt;
auk þess er sóminn víst í veði;
vér skulum ekki gjöra slíkt;
:: þiggjum framborið vín og vist,
veri skynsamlig holdsins lyst! ::
4. Velkomnir gestir, verið inni!
velkomnir allir góðir menn,
þeir híngað komu' í þessu sinni!
þess biðr yður húsbóndinn,
:: að velkomanda virðið mál,
velkomnir drekkið þessa skál. ::
5. Velkominn þú sem kemur hingað,
kærustu' að sækja festar-mey!
náttúran hefir þarum þíngað,
þetta hlutskipti bregðst þér ei!
:: hrundin þín bíðr hýr ákinn,
hún óskar þú sért velkominn. ::
6. Brátt líður nótt og birtist dagr,
bíð til þess rennr morgun-sól;
búskapar er þá búinn hagr,
brúðkaups til boðnum efnuð jól;
:: gef oss, drottin! það gángið í vil
gef þar blessaðr lukku til! ::
Velkomnir gestir verið inni o. s. frv. segir siðamaðr svarandi saungvurum, sem hin erindin súngið hafa. (Saung-kórar eru tveir viðhafðir, annar af rosknum mönnum, hinn af úngmennum, og sýngja þeir s[t]undum sér og svara hvörjir öðrum, stundum til samans; hljóðfæri eru og viðhöfð ef til eru; á þessu kvæði er jafnan niðrlagið tvítekið.