Fyrirsögn:
Helblinda – Svo er kallað þetta kvæði, sem er gjört tilfinningarlausum mönnum til viðvörunar, hvörjir eð þykjast nógu góðir vera, og aldrei kannast eðr vikna við guðs blendingar, né þekkja það synda straff, sem þeir sjálfir hafa baksað sér, þó það sé svo auðkenniliga yfir þá komið; hvar uppá það er helzt tekið til dæmis, hvörsu hræðiliga fólkið er að fækka á Islandi af aumkunarligri ótímgun, og undarligu sinnuleysi innbyggjaranna, hvarfyrir landið muni innan skamms eyðast, nema guð náðarsamliga sjái eitthvað gott ráð fyrir því, en mennirnir betri sig, og einkum forðist þá yfirgángandi svívirðiligu lostagirnd hórdóms og saurlifnaðar, en óguðræknir, ræktarlausir og latir foreldrar leggi af þann bölvaða vana, að þeir hirða hvorki um fjöldgun barna sinna, né þeirra kristiligt og ærligt uppeldi, heldr eru að óska sér að þau deyi jafnóðum og þau fæðast, og verðr þeim svo eptir óguðligri ósk sinni, með fleiri orsökum, sem drepið er á í þessu kvæði.
Lagboði:
Sem við Agnesarkvæði
Höfundur:
Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Agnesarkvæði - Upphaf: „Í þann tíma ríkti í Róm/ ræsir einn á láði." Eftir Þorvald Magnússon (f. 1670. d. 1741). Íslenskt söguljóð
Annálskvæði - Upphaf: „Gefst hér mörgum skemmun skýr," Eftir Guðmund Bergþórsson (f. 1657. d. 1705)
Brúðkaupskvæði - Upphaf: „Vér erum allir mótgangsmenn/ og megum huggun þiggja." Eftir Ólaf Indriðason frá Kolfreyjustað (f. 1796. d. 1861). Brúðkaupskvæði
Heimspekingaskóli - Upphaf: „Þegar fólki er þannig vart." Eftir Guðmund Bergþórsson (f. 1657. d. 1705).
Leitar mín í ljóðum frekt - Upphaf: „Leitar mín í ljóðum frekt/ lindin frænings palla." Afmorskvæði
Margrétarkvæði - Upphaf: „Svo er skrifað suður í Róm." Þetta kvæði er kaþólskt, ort löngu eftir siðaskipti. Höfundur ókunnur. Íslenskt söguljóð
Minningarkvæði um Jón Arason og sonu hans - Upphaf: „Margir hafa þá menntanægð/ menn í þessu landi." Eftir Ólaf Tómasson á Hafgrímsstöðum (f. 1532. d. 1595)
Varla má þér vesælt hross - Upphaf: „Varla má þér vesælt hross." Eftir síra Jón Þorláksson á Bægisá (f. 1744. d. 1819). Hestavísa.
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Forlögunum fresta má,
en fyrirkomast aldrei,
svona formenn sögðu frá,
sinna þessum galdri
ótal kristnir enn;
gangi stríðið eitthvört að,
örvænta þeir senn,
og hyggja bænar hvörgi stað
fyrir hjálparlausa menn.
2. Annan miklu fleiri flokk
fylla' á þessum tíma,
þartil vítis detta' í dokk
dáðalausir hýma
við líkams losta sinn,
láta svo sem verkast vill
verða lifnaðinn;
því geti hvorki góð né ill
gjöldin burtdáinn