(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Þorvaldur Magnússon á Sauðanesi (f. 1670. d. 1741) var merkilegt skáld, ættaður frá Húsavík á Tjörnesi. Þorvaldur var ókvæntur, barnlaus og hálfgerður flökkumaður um sveitir landsins. Hann var sonur Magnúsar Illugasonar prests í Húsavík á Tjörnesi og Ólafar Þorvaldsdóttur. Þorvaldur orti meðal annars söguljóð andlegs efnis, t.d. um dýrlinga frá kaþólskri tíð. Jón Steingrímsson eldklerkur (f. 1728. d. 1791) eignar Þorvaldi Agnesarkvæði.
Kvæði Þorvaldar Magnússonar með þjóðlögum:
Agnesarkvæði - Upphaf: „Í þann tíma ríkti í Róm/ ræsir einn á láði." Íslenskt söguljóð og helgikvæði
Veronikukvæði - Upphaf: „Kveð ég um kvinnu eina." Íslenskt söguljóð og helgikvæði