(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Síra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal (f. 1724. d. 1794) var íslenskt skáld og brautryðjandi í garðrækt og jarðyrkju á Íslandi. Hann útskrifaðist úr Skálholtsskóla árið 1745 og gerðist prestur í Sauðlauksdal í Rauðasandshreppi (Vestur-Barðastrandarsýslu). Björn var einarður stuðningsmaður upplýsingastefnunnar á Íslandi. Björn var mágur Eggerts Ólafssonar (f. 1726. d. 1768) boðbera upplýsingarinnar á Íslandi.
Kvæði eftir síra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal:
Ævitíminn eyðist - Upphaf: „Ævitíminn eyðist/ unnið skyldi langtum meir"