Veröld fláa sýnir sig er lífsleiðindavísa, sungin með mismunandi kvæðalögum. Kvæðalagið sem Anna Þórhallsdóttir (f. 1904. d. 1994) notaði við vísuna er þekktast. Fyrra erindið er húsgangur en hið síðara er eftir Erlend Gottskálksson (f. 1818. d. 1894) frá Nýja bæ í Kelduhverfi
Fyrirsögn:
Veröld fláa sýnir sig
Lagboði:
Íslensk kvæðalög
Höfundur:
Fyrsta erindið er húsgangur. Annað erindi er eftir Erlend Gottskálksson (f. 1818. d. 1894) frá Nýja bæ í Kelduhverfi
Kvæðagrein:
Heimsósómar
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Veröld fláa sýnir sig
sú mér spáir hörðu
flest öll stráin stinga mig
stór og smá á jörðu.
2. Alltaf bætist raun við raun,
réna gleðistundir.
Það er ei nema hraun við hraun
höllum fæti undir.