Fyrirsögn:
Upptektarþula
Lagboði:
Lagið er glatað en líklegast hefur það verið svipað og lagið við Fúsintesþulu
Höfundur:
Ókunnur. Þjóðkvæði
Kvæðagrein:
Formúluvísur/keðjukvæði; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Á ekki við eða e.t.v. Fúsintesþula
Heimild/kvæðið á prenti:
1. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar tá.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir tátoppur.”
Heill sé þér tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
2. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar rist.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir ristkampur.”
Heill sé þér ristkamp
og tátopp.”
„og fótinn á þér fríða.”
3. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar legg.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir pípuleggur.”
Heill sé þér pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
4. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar hné.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir hnjápungur.”
Heill sé þér hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
5. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar lær.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir lærleggur.”
Heill sé þér lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
6. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar rass.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir setuhnakkur.”
Heill sé þér setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
7. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar líf.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir viðfall.”
Heill sé þér viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
8. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar brjóst.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir mathús.”
Heill sé þér mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
9. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar munn.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir málhús.”
Heill sé þér málhús,
mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
10. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar nef.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir nefhús.”
Heill sé þér andhús,
málhús,
mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
11. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar eyra.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heitir heyrnhús.”
Heill sé þér heyrnhús,
andhús,
málhús,
mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
12. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar auga.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heita sjónbaugar.”
Heill sé ykkur sjónbaugar,
heyrnhús,
andhús,
málhús,
mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”
13. Hann tók upp og hann tók upp á frúnni;
hann tók upp á hennar höfuð.
„Hvað er það, mín ljúfa?”
„Það heita hársvörður.”
Heill sé ykkur hársvörður,
sjónbaugar,
heyrnhús,
andhús,
málhús,
mathús,
viðfall,
setuhnakkur,
lærleggur,
hnjápungur,
pípuleggur,
ristkampur,
tátoppur.”
„Fótinn á þér fríða.”