Maríulykill eftir Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471). Hér yrkir Jón í mörgum bragarháttum, enda kallast kvæðið Maríulykill (sbr. háttalykill).
Fyrirsögn:
Maríulykill
Lagboði:
Íslensk þjóðlög
Höfundur:
Jón Pálsson Maríuskáld (f. um 1390. d. um 1471)
Kvæði undir sama bragarhætti:
Heimild/kvæðið á prenti:
Drottning æðsta, dýr af ættum,
drottins móðir, jungfrú góða,
Máría skærust, dyggða dýrust,
dáðaprýddust, full af náðum,
veittu mér, að ég verða mætta
vonarmaðr, sem allir aðrir,
þína mjúka miskunn leika,
mætust brúður himnasætis.