(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Gunni Hallsson (f. 1465. d. 1545) var skáld, bjó í Efra-Ási í Hjaltadal (Skagaf.) á dögum Gottskálks grimma Nikulássonar (f. 1469. d. 1520) og fram í tíð Jóns Arasonar Hólabiskups (f. 1484. d. 1550). Samkvæmt varðveittum heimildum Hallotu, dóttur Gunna, var faðir hennar „haldinn í þær mundir bæði margfróður og minnugur, og umgekkst bæði með biskup Gottskalk og biskup Jón langan tíma, og var heimilismaður á Hólum um 18 ár upp frá því hann brá búskap." Gunni var níræður þegar hann lést.
Varðveitt kvæði eftir Gunna Hallsson:
Sancti Ólafs vísur - Upphaf: „Herra Ólaf, hjálpari Noregs landa." Varðveittar í AM 721. 4to og fjölmörgum pappírshandritum. Helgikvæði