Fyrirsögn:
Dorotheu kvæði
Lagboði:
Íslenskt sálmalag. Jón Sigurðsson (f. 1915. d. 1989.) frá Starmýri í Álftafirði söng kvæðið með þessu sálmalagi á segulband árið 1969.
Höfundur:
Óvíst
Kvæðagrein:
Kvæði undir sama bragarhætti:
Íslands árgalinn - Upphaf: „Allsvaldandi engla og manna." Eftir síra Ólaf Einarsson (f. 1573. d. 1651) í Kirkjubæ í Hróarstungu
Passíusálmur nr. 30 - Upphaf: „Stríðsmenn krist úr kápu klæddu." Eftir Hallgrím Pétursson (f. 1614. d. 1674)
Heimild/kvæðið á prenti:
Kvæðið hefur líklegast aldrei verið gefið út á prenti. Kvæðið hefur hvorki fundist í bókum eða á netinu.
1. Hef ég mér sett með hervalds ráði
hróðrar lítið efnaspil
hamingjan bý ég nú það náði
nýtt er ekki mælskan til
einfaldasta orða sáði
ég vil gjarna gjöra á skil.
2. Því vil ég banga bögu stirða
börnin til að gamna sér
lýðið látið veit ég virða
verknað þennan fyrir mér
vel er skylda að fljóð og fyrðar
færi drottinn þakkir þér.
[Óvíst með lengd kvæðis]