(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Arngrímur ábóti Brandsson (d. 1361) var prestur í Odda á Rangárvöllum, ábóti í Þingeyraklaustri, skáld og tónlistarmaður. Hann er talinn hafa látið smíða orgel og flutt það út til Íslands. Mun það vera fyrsta orgelið sem sögur fara af á Íslandi. Hann dó sama ár og Eysteinn Ásgrímsson munkur. Þeir hafa því verið samtímamenn.
Kvæði eftir Arngrím ábóta Brandsson:
Guðmundar drápa biskups - Upphaf: „Ræsi heiðra ek lopts ens ljósa." Kvæði ort undir liljulagi.