(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Oddur Halldórsson handi (uppi á 16. öld) var íslenskt skáld sem afar lítið er vitað um. Hann var prestur á fyrri hluta 16. aldar og samkvæmt biskupaannálum Jóns Egilssonar á Oddur að hafa verið handhöggvinn á Varmalækjarbökkum í Borgarfirði í kringum árin 1512-1515. Í kjölfarið þurfti Oddur að láta af prestskap og fékk í kjölfarið viðurnefnið „handi". Einungis er vitað um eitt kvæði sem Oddur orti, en það eru Biskups Jóns vísur, um Jón biskup Arason (f. 1484. d. 1550) og sonu hans. Varðveist hefur íslenskt þjóðlag við þetta kvæði, í Kvæðabók síra Ólafs Jónssonar frá Söndum (f. 1560. d. 1627) sem þykir afar merkilegt.
Kvæði eftir Odd Halldórsson handi með íslensku þjóðlagi:
Biskups Jóns vísur - Upphaf: „Rögnis rósar minni." Sjá helgikvæði