(Til baka í íslensku skáldin og þjóðlögin)
Sigurður blindur Narfason (f. um 1470. d. um 1545). Skáld og bóndi í Ytri-Fagradal fyrir austan (Breiðdal)? Hann er nefndur í Tíðsfordrífi Jóns Guðmundssonar lærða, þar er hann kallaður Sigurður blindur í Fagradal. Honum eru eignaðar helgikvæðið Rósa og nokkrir rímnaflokkar, þ.á.m. Svöldrar rímur, um Svoldarbardaga sem háður var árið 999 eða 1000.
Kvæði og rímur eftir Sigurð með varðveittum lagboðum:
Rósa - Upphaf: „Faðir og son á hæstu hæðum." Helgikvæði
Svöldrarrímur - Upphaf: „Níutigir skipa í nógum byr/ Norðmenn létu skríða." Rímur