Óska ferju auðs af sandi er gamalt vikivakakvæði, varðveitt í handritinu ÁM. 148, 8, 327. bl. Tóndæmið hér fyrir neðan er gamalt íslenskt þjóðlag sem geymdist á vörum Kristrúnar Matthíasdóttur (1923-2011) frá Fossi í Hrunamannahreppi en það lag söng hún við Sláttukvæði eftir Jón Oddsson Hjaltalín.
Fyrirsögn:
Eitt kvæði/ Óskaferju auðs af sandi
Lagboði:
Týndur. Tillaga að lagboða: Lög við Sláttukvæði, Fuglskvæði úr annálum eða Lysthús-kvæði
Höfundur:
Ókunnur
Kvæðagrein:
Vikivakakvæði; Vikivakar; Íslensk þjóðkvæði
Kvæði undir sama bragarhætti:
Dansinn undir hlíða - Upphaf: „Gullaðs þallir gamanið lengi." Vikivakakvæði
Fuglskvæði úr annálum - Upphaf: „Einsetumaður einu sinni." Eftir Guðmund Bergþórsson
Gaman er að Gísla Víum - Upphaf: „Gaman er að Gísla Víum/ glampar hann eins og sól í skýjum." Eftir Pál Ólafsson (f. 1827. d. 1905). Kvæði undir vikivakakvæðahætti
Hafnarsæla - Upphaf: „Förum vér til gleði að ganga." Eftir Eggert Ólafsson (f. 1726. d. 1768)
Karl og kerling - Þetta kvæði er ýkjukvæði frá miðöldum. Í Niðurraðan og undirvísan er þetta kvæði kallað „ kallmanna vikivaki" Lagboðinn: Lysthús-kvæði.
Kvæði Egils Ólafssonar, að sögn 12 ára - Upphaf: „Mig hefir lítinn mansaungs keik". Vikivakakvæði
Kvæðiskorn - Upphaf: „Heilsugjöf og hamingjugæði." Vikivakakvæði
Lysthús-kvæði - Upphaf: „Undir bláum sólarsali." Eftir Eggert Ólafsson
Sláttukvæði- Upphaf: „Af bónda einum byrjast kvæði." Eftir Jón Oddsson Hjaltalín. Vikivakakvæði
Þó fara skórnir hálfu ver - Upphaf: „Blakkt er traf á heila húsi." Vikivakakvæði
Þær halda mig þurrlegan - Upphaf: „Oftast róla eg einn í dansi." Vikivakakvæði
Heimild/kvæðið á prenti:
Íslenzkir vikivakar og vikivakakvæði, 1894, bls. 167-168.
Viðlag: Lofs er verður listamann
lands um alla,
lands um kringlu alla.
1. Óskaferju auðs af sandi
ýta skal frá þagnar landi,
má það heita mestur vandi
máls að ferma byrðing þann
lofs er verður listamann-
þá tungan sleppur úr tjóðurs bandi
tóns um ljóða palla.
lands um alla,
lands um kringlu alla.
2. Frægð og sómi, fleina meiður,
fylgi þér, enn stærsti heiður,
minnis ranns í máli greiður,
mesta list yfir flesta kann.
lofs er verður listamann-
Lukkuvegurinn liggi greiður
fyrir lesti nöðru palla
lands um alla,
lands um kringlu alla.
3. Mæta fáðu menjatróðu,
málmaviður, með skarti góðu,
sértu kvittur sorgar móðu,
sinnisglaður um hjartans rann,
lofs er verður listamann-
búinn vel með bragði rjóðu,
bundinn engum galla.
lands um alla,
lands um kringlu alla.
4. Suptúngs skal hér sagður fengur
af Sónar tunnu ekki lengur,
fúinn má heita fræða þvengur,
fyrir það ekki halda kann.
lofs er verður listamann-
Af kerinu Boðnar gilkrótt gengur
greitt skal kvæðið falla
lands um alla,
lands um kringlu alla.